Heildverslun
Waterfront býður í heildsölu til endursöluaðila ýmsar vörur sem snúa að fiskabúrahaldi. Okkar helsti samstarfsaðili er þýski fiskabúraframleiðandinn JUWEL Aquariums sem eru mest seldu fiskabúrin í Evrópu og er Ísland engin undantekning á því.

Við erum stolt af því að hafa þjónustað þessi fiskabúr á Íslandi frá árinu 2000 og gæði þeirra hafa talað sínu máli í þeim viðtökum sem þau hafa fengið.

Til að tryggja sem bestu þjónustu til okkar viðskiptavina leggjum við metnað í að hafa breitt úrval á sem lægstum kostnaði og mögulegt er.
fiskabur